Hans Petersen

Karfan er tóm
Ganga frá pöntun

Tækifæriskort


 

Við bjóðum upp á fimm mismunandi leiðir til að koma stafrænu myndunum þínum í framköllun hjá okkur. 


Það skiptir í raun ekki máli á hvaða geymsluformi þú geymir myndirnar þínar, við tökum við flest öllum gerðum.

1. Þú getur komið með minniskortið til okkar í Ármúla 38 eða á afgreiðslu Íslandspósts og við framköllun beint af því

2. Þú getur líka skrifað þær myndir sem þú vilt fá framkallaðar beint á geisladisk og komið með diskinn til okkar á sömu staði.

3. Þú getur líka komið minnislykli með myndunum þínum á til okkar.

4. Þú sendir okkur myndirnar yfir netið
Það er mjög einfalt og þægilegt að senda okkur myndirnar yfir netið. Það eru líka nokkrir möguleikar fyrir þig að senda myndirnar til okkar. Best er að senda myndirnar með netframköllunarhugbúnaðinum okkar. Hann er mjög einfaldur í notkun og allur á íslensku. Þú einfaldlega nálgast hugbúnaðinn hérna, hleður honum niður í tölvuna hjá þér og byrjar að nota hann. Nánari leiðbeiningar með uppsetningu, innskráningu og að nota hugbúnaðinn getur þú nálgast hérna einnig.

5. Þú getur líka sent okkur tölvupóst með myndirnar sem viðhengi. Best er að senda myndirnar á netfangið mynd@hanspetersen.is. Rétt er þó að benda á að myndirnar verða að vera viðhengi en ekki límdar (paste) beint í póstinn. Einnig getur þessi aðferð verið tímafrek ef þú ert að senda mikið af myndum.

Öll framköllun fer fram á KODAK gæðapappír.

Verðskráin

  Verð pr. mynd
    1-50 myndir kr. 37 pr. mynd
  50-100 myndir kr. 34 pr mynd
100-1000 myndir kr. 30 pr. mynd
1000 og fleiri kr. 25 pr. mynd
Netframköllun kr. 29 pr. mynd
Lágmarksgjald kr. 250 pr. framleiðslu

 

 Ná í hugbúnað og læra á kerfið

Sækja hugbúnað

Auðvelt og fljótlegt er að senda myndir yfir netið í framköllun.
Það eina sem þú þarft að gera er að hlaða niður hugbúnaði og setja hann upp í tölvunni hjá þér eða senda okkur myndirnar á tölvupósti á mynd@hanspetersen.is . 

Ýmsar leiðbeiningar
Hérna getur þú nálgast leiðbeiningar með netframköllunarhugbúnaðinum okkar. Einnig er hægt að senda tölvupóst á
mynd@hanspetersen.is ef það eru einhverjar spurningar.


Smelltu  hérna  fyrir leiðbeiningar með uppsetningu.

Smelltu hérna  fyrir leiðbeiningar með innskráningu og notkun á hugbúnaðinum.

Við höfun nokkrum sinnum fengið send batterí úr myndavélum og við beðin um að framkalla af þeim. Það getum við ekki gert :-)

ATH AРLOFUNARTÍMI Á FRAMKÖLLUN EÐA STAFRÆNNI PRENTUN ER 2 VIRKIR DAGAR

   Our Digital printing in English

 

 

 

Af hverju framkallar þú ekki?